Um Aurum

Aurum ehf. er skartgripafyrirtæki sem var stofnað árið 1999 og er í dag með eina verslun að Bankastræti 4, ásamt framleiðslu og hönnun. Verslunin er staðsett á einum besta stað á helstu verslunargötu Reykajvíkur. Höfuðáherslur Aurum er að hanna nútímalega skartgripi úr hefðbundnum efnum. Síðastliðin 10 ár hefur fyrirtækinu vegnað vel og hefur stækkað jafnt og þétt á þessum árum.

Markmið Aurum er að vera í fararbroddi í hönnun skartgripa, framsækið og ábyrgt fyrirtæki, að hanna nútímalega skartgripi sem framleiddir eru úr hefðbundnum efnum. Einnig að ímynd fyrirtækisins styrkist, en hún einkennist af kvenleika, krafti og nútímalegu útliti.

Starfsmenn Aurum hafa yfir að búa góðri sérhæfðri þekkingu í hönnun og smíði skartgripa ásamt því að sýna fagmennsku og góða þjónustu við störf sín. Vörur Aurum einkennast af: góðu handverki, nútímaleg hönnun, sterkum eigin still, skartgripalínur sem bera íslensk, kvenmannsnöfn, kvenlegt og fínlegt.

Styrkleiki Aurum er: skartgripir sem einkennast af kvenleika, krafti og nútímalegu útliti.

Aurum selur skartgripi sína á tveimur stöðum á Íslandi fyrir utan verslunina í Bankastræti. Heimasíða Aurum er: www.aurum.is, sem er einnig vefverslun.

Hönnunarlínan

Alda, Blær, Dögg og Ísold eru heiti á skartgripum hönnuðum af Guðbjörgu Kristín Ingvarsdóttur undir heitinu Aurum. Skartgripirnir eru allir unnir úr eðalmálmum og sækja lögun sína meðal annars til náttúrunnar þar sem finna má fíngerð og óregluleg form sem brjóta í sífellu upp hefðbundnar hugmyndir um jafnvægi og formfestu. Aurum skartgripirnir eru uppfullir af smáatriðum og fínlegum dráttum sem gefa þeim kvenlegt yfirbragð og um leið léttleika og nútímalegt útlit. Í því sambandi má nefna hönnunarlínuna Svölu sem er bæði stílhrein og flókin í senn og sækir innblástur í lögun og hreyfingar fiðrildisins. Rétt eins og aðrar hönnunarlínur Aurum byggir Svala á fjórum ólíkum gripum, hálsmenum, armböndum, hringum og lokkum, sem hannaðir eru út frá sömu hugmynd og skapa eina heild. Hver skartgripur fyrir sig er í senn tilbrigði við annan grip í sömu línu og sjálfstætt verk um leið. Hver skartgripalína ber íslenskt kvennmansnafn.

Hönnuðurinn

Guðbjörg Kristín Ingvarsdóttir lærði gullsmíði og skartgripahönnun við Institute for Precious Metals í Kaupmannahöfn. Árið 1999 stofnaði hún hönnunarfyrirtækið Aurum og hefur á síðustu árum skapað sér nafn fyrir persónulegan og fágaðan stíl. Það sem einkennir hönnun Guðbjargar er hreyfanleiki, fínleg smáatriði og jafnvægi. Náttúruleg munstur og form öðlast nýja merkingu í þrívíddarhönnun hennar sem er hvort tveggja í senn, kvenleg og flókin. Guðbjörg vinnur með jafn ólík efni og gull, silfur, nælon, gúmmí og stál í hönnun sinni og blandar þeim saman á einstakan og skapandi hátt. Aurum skartgripirnir byggja þannig á nútímlegri hönnun og aðferðum en eru um leið bæði fágaðir og stílhreinir og hafa þannig yfir sér yfirbragð tímaleysis.


AurumBankastræti 4Sími: 551 2770
Öryggi viðskiptavinaSkilmálar og reglur© 2008 AURUM EHF.