Friðhelgi & öryggi viðskiptavina
Trúnaðarskylda/Þagnarskylda
Aurum ábyrgist friðhelgi þína og gerir allt sem í valdi fyrirtækisins stendur til þess að gæta öryggis þeirra upplýsinga sem við söfnum. Þess vegna hefur fyrirtækið sett sér eftirfarandi öryggisráðstafanir um aðferðir við að safna, varðveita og nýta þær upplýsingar sem þú gefur. Eftirfarandi ábyrgð nær aðeins til vefseturs okkar en ekki til annarra vefsetra sem ekki eru á ábyrgð Aurum.
Öryggis- og varúðarreglur
Allar upplýsingar eru dulkóðaðar sem þú slærð inn í rafræn pöntunareyðublöð okkar í nútímalegum netvafra á borð við Internet Explorer or Mozilla Firefox. SSL-dulkóðun dulritar þær upplýsingar sem berast með netvafranum og miðlar þeim öruggum þannig að upplýsingarnar berast aðeins og eingöngu til okkar. Sjá dulkóðunarskírteini. Með þessu er fullkomlega öruggt að greiða með greiðslukorti í netversluninni.
Öryggi þitt á Netinu – dulkóðun
Hafðu í huga að ef netvafri þinn sýnir https: í stað hins hefðbundna http: er netvafrinn óhultur. Þær upplýsingar sem þú slærð inn í rafræna pöntunareyðublaðið eru dulkóðaðar. þetta tryggir að óviðkomandi aðilar geta ekki komist yfir upplýsingarnar og því þriðja aðila einskis nýtar.
Farið er eftir ströngustu öryggiskröfum á markaðnum í netverslun Aurum. Þér er því óhætt að nota kreditkort í netversluninni. Aurum notar 256 bita dulkóðun sem er ein sú öruggasta í dag til að gæta öryggis viðskiptavina okkar.
Að vernda persónulegar upplýsingar – trúnaður
Fullum trúnaði er heitið vegna persónuupplýsinga. Við geymum þannig upplýsingar aðeins að því marki sem okkur er nauðsyn til að stunda lögleg og siðleg viðskipti. Það er því lögð öll áhersla á að varðveita upplýsingar þínar á öruggan hátt.
Þú samþykkir öryggisstefnu okkar með því að nota vefsetrið. Ef þú samþykkir ekki öryggisstefnu okkar förum við þess á leit að þú notir ekki þetta vefsetur.
Við áskiljum okkur rétt til þess að breyta öryggisstefnu okkar ef þörf krefur.
Content By Section
-
About Aurum
(4 items)
-
Retail Stores
(1 item)
-
Gallery
(1 item)
-
Other designers
(7 items)
