Skilmálar & reglur
Samningur
Aurum tekur við pöntun þegar greiðsla hefur borist fyrir það sem pantað var. Strax og greiðsla berst sendum við þér staðfestingu í netpósti og þar með er kominn á löglegur samningur á milli þín og Aurum.
Verð, skattar og gjöld
Öll verð í íslensku netverslunni eru með vsk.
Í ensku netversluninni eru verð með vsk. en sá kostnaður dregst frá ef varan er send út fyrir Ísland. Viðskiptavinir búsettir erlendis geta þurft að greiða tolla og gjöld af pöntun sinni. Kaupandi stendur straum af öllum þess háttar gjöldum.
Greiðsluform
Netverslunin samþykkir bæði Visa og MasterCard greiðslukort.
Netverð
Vinsamlegast athugið að verðið á netversluninni getur breyst án fyrirvara.
Vörur
Við leggjum okkur fram um að sýna allar vörur okkar í réttum litum. Það er hins vegar útilokað að ábyrgjast alveg rétt litbrigði eins og þau birtast á þínum tölvuskjá vegna þess að vefmyndir búa við ákveðnar tæknilegar takmarkanir.
Afhending
Innanlands: Allar pantanir eru sendar með Íslandspósti án endurgjalds. Pantanirnar eru sendar heim til þín og póstlagðar næsta virkan dag, að því tilskildu að þær séu til á lager.
Einnig er hægt að kaupa vörur í netversluninni og sækja þær í verslun okkar við Bankastræti 4, 101 Reykjavík.
Erlendis: Allar pantanir eru sendar með hraðflutningsþjónustu DHL samkvæmt skilmálum fyrirtækisins og skilyrðum. Hægt er að fylgjast með stöðu sendinga á heimasíðu DHL. DHL afhendir sendingar til viðtakanda. Það tekur 2-5 daga.Sendingarkostnaður
Innanlands: Aurum sendir vörur sína frítt til viðskiptavina sinna.
Erlendis: Sendingarkostnaður er innheimtur í samræmi við gildandi verðskrá DHL.
Reglur um skil
Ef þú ert ekki ánægð/ur með vörur frá Aurum er hægt að skila þeim til okkar innan 14 daga frá afhendingu gegn endurgreiðslu inneignarnótu. Endurgreiðsla á sér stað innan 15 daga. Kvittun verður að fylgja öllum vörum sem skilað er. Skila þarf vörunni óskemmdri og í upprunalegum umbúðum.
Ef vörur hafa skemmst í flutningum förum við fram á að þú geymir vöruna og upprunalegar umbúðir og hafir umsvifalaust samband í síma 551-2770 eða með tölvupósti til info@aurum.is. Skila þarf vörunni óskemmdri og í upprunalegum umbúðum. Sendingarkostnaður ekki endurgreiddur nema um galla sé að ræða.
Ef sú staða kemur upp að þú fáir afhenta skemmda eða gallaða vöru ábyrgjumst við skipti eins fljótt og hægt er, þó með því skilyrði að tilkynning berist okkur í tölvupósti innan 4 virkra daga frá afhendingu.
Við vonumst til þess að þú verðir ánægð/ur með þær vörur sem þú kaupir af okkur.
Öryggi
Þú hefur lesið og samþykkt öryggis- og varúðarreglur Aurum (sjá síðu okkar um trúnaðarskyldu).
Varnarþing
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli.
